Höfundur: Ólafur Sveinn Jóhannesson
Úr eldri árgöngum
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
---|---|---|---|
Klettur Ljóð úr sprungum | Ólafur Sveinn Jóhannesson | Bjartur | Klettur – ljóð úr sprungum er óvenjuleg ljóðabók. Ólafur Sveinn Jóhannesson missti ungur að árum foreldra sína og sem elsta barn þeirra tók hann að sér uppeldi yngri systkina. Hér yrkir hann um sína einstöku lífsreynslu af einlægni og íhugun sem er áhrifamikil og lifir lengi með lesandanum. |
Tálknfirðingur BA | Ólafur Sveinn Jóhannesson | Bjartur | Ólafur Sveinn Jóhannesson sló í gegn með ljóðabók sinni Klettur – ljóð úr sprungum, sem fékk afbragðs dóma og var tilnefnd til ljóðabókaverðlaunanna, Maístjörnunnar. Hér heldur hann áfram að yrkja um sína heimabyggð af einlægni og dregur upp áhrifamiklar myndir af mannlífi og tilveru fyrir vestan af næmri tilfinningu og húmor. |