Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Grikkland hið forna

Þættir úr sögu fornaldar

Forsíða bókarinnar

Í Grikklandi hinu forna eru dregin saman meginatriðin í sögu hins gríska menningarheims allt frá tímum Mínóa á Krít og þar til Rómverjar lögðu löndin við austanvert Miðjarðarhaf undir veldi sitt á 1. öld f.Kr. Bókin er prýdd ríkulegu myndefni sem varpar ljósi á þá atburði og persónur sem um er fjallað.

Þótt bókin sé upphaflega samin sem kennslubók fyrir framhaldsskóla nýtist hún ekki síður almennum lesendum sem vilja kynna sér menningu og sögu Forn-Grikkja í liprum og aðgengilegum texta.