Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hundmann - Flóadróttinssaga

  • Höfundur Dav Pilkey
  • Þýðandi Sigurgeir Orri Sigurgeirsson
Forsíða bókarinnar

Fimmta bókin í bókaflokknum um hinn vinsæla Hundmann eftir Dav Pilkey, höfund Kapteins Ofurbrókar bókanna. Hér fer hann á kostum í húrrandi glensi og spaugi með ýmsum fíflagangi í bland. Fáar bækur eru elskaðar jafn heitt af ungum lesendum og Hundmann bækurnar.

Bækurnar um Hundmann hafa slegið í gegn um allan heim og hafa selst í tugum milljóna eintaka. Raunar er leit að vinsælli barnabókum um þessar mundir.

Þetta er fimmta bókin í bókaflokknum um hann en auk þess hefur komið út bók um Kattmann. Dav Pilkey, sem einnig samdi bækurnar um Kaptein Ofurbrók, fer hér á kostum. Húrrandi glens og spaug með ýmsum fíflagangi í bland. Oft ansi gott og ristir dýpra en við fyrstu sýn. Hér í frábærri þýðingu Sigurgeirs Orra Sigurgeirssonar.