Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Leikmenntir

Um að nálgast það sem mann langar að segja í leikhúsi

  • Höfundur Sveinn Einarsson
Forsíða bókarinnar

Hvernig verður leiksýning til sem listaverk? Í þessar bók ræðir dr. Sveinn Einarsson form listaverksins, stíl og orðfæri og svo sjálfa sviðsetninguna. Bókin er rituð á einföldu og skiljanlegu máli um flókið fyrirbæri sem langflestir þekkja þó af eigin raun.

Fáir Íslendingar hafa jafn mikla reynslu af leikhúsi og dr. Sveinn Einarsson sem ritað hefur fjölmargar bækur um leikhúsfræði og leiklistarsögu en glímir nú í fyrsta sinn við galdur sjálfrar leiksýningarinnar.

Hann ræðir form listaverksins, stíl og orðfæri svo og sjálfa sviðsetninguna og hlutverk leikstjóra og leikara í að skapa verk þar sem höfundur, áhorfendur og sviðlistamenn mætast í einum sal.