Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Maðurinn frá São Paulo

Frá handhafa Blóðdropans 2022.

  • Höfundur Skúli Sigurðsson
Forsíða bókarinnar

Maðurinn frá São Paulo er spennusaga um launmorð, njósnir og nasista á flótta. Í þessari annarri bók sinni fléttar Skúli Sigurðsson skáldskap saman við sögulega atburði og raunverulegar persónur svo úr verður magnaður hildarleikur – sem heldur lesendum í heljargreipum til síðustu síðu.

Þýskur hermaður særist í orrustunni um Rostov í Úkraínu árið 1942. Honum er bjargað við illan leik.

Josef Mengele, dauðaengillinn í Auschwitz, flýr Evrópu fjórum árum eftir stríðslok.

Árið 1960 rænir ísraelska leyniþjónustan Adolf Eichmann í Buenos Aires. Réttað er yfir honum og hann hengdur í Tel Aviv.

Í Reykjavík er leigubílstjóri skotinn í hnakkann árið 1977. Héðinn Vernharðsson rannsakar málið.

Fyrsta bók Skúla, Stóri bróðir, hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin.