Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Sólgarðurinn

  • Höfundur Beinir Bergsson
  • Þýðandi Guðrún Brjánsdóttir
Forsíða bókarinnar

Sólgarðurinn fjallar um allt það sem vex, dafnar og visnar innra með okkur. Bók þessi er tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs árið 2022. Um er að ræða tímamótaverk í færeysku samfélagi sem fjallar á opinskáan og einlægan hátt um hinsegin ástir.

Sólgarðurinn fjallar um allt það sem vex, dafnar og visnar innra með okkur. Ljóðmælandi gerir upp eigin rætur, föður- missi og sambönd sem teygja anga sína til fortíðar. Í gegnum frjóar og lifandi náttúrumyndir fylgir lesandi ástarsambandi tveggja manna, hvernig þeir sá fræjum innra með hvor öðrum og uppskera. Bókin hlaut EBBA verðlaunin og var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Um er að ræða tímamótaverk í færeysku samfélagi sem fjallar á opinskáan og einlægan hátt um hinsegin ástir.