Bókamarkaður á Akureyri fer vel af stað Print Netfang
Skrifað af Administrator   
Tuesday, 30 March 2010 08:24

bokakallÞessa dagana stendur yfir bókamarkaður félagsins á Akureyri. Við heyrðum í framkvæmdastjóra markaðarins í gær og hann var að vonum ánægður með móttökur þarna fyrir norðan. Við gefum honum orðið.

 

Sælir
Já héðan frá Akureyri er allt fínt að frétta. Veður hefur verið ágætt, og fært til allra átta.  
Markaðurinn er í góðu húsnæði við hlið Glerártorgsins, í sömu húsalengju og Bakaríið við Brúna, eins og undanfarin ár.
Að þessu sinni eru á fimmta þúsund titlar í boði og næsta víst að markaðurinn hefur aldrei verið stærri að umfangi.  Mjög almenn ánægja er hér á Akureyri með uppsetningu og úrval á Bókamarkaðinum. Nú er hann að vinna sér fastann sess í bæjarlífinu eins og hann hafði áðurfyrr.
Gert er ráð fyrir að aukning í sölu verði um 30% milli ára og má það teljast fátítt í smásölu í dag.
Opið er alla daga 11-18 nema á Föstudaginn langa og Páskadag þá er lokað.  Síðasti opnunardagur verður þriðjudagurinn 6. apríl.

kveðja
Kalli

 

Bókamarkaðurinn á Akureyri er nú haldinn þriðja árið í röð og á hverju ári hefur bæði bæst við úrval bóka sem og ásókn bæjarbúa og nærsveitarmanna. Eins og Kristján Karl framkvæmdastjóri minnist á er markaðurinn á góðri leið með að festa sig rækilega í sessi sem fastur liður í tilveru íbúa á Norðurlandi á sama hátt og Bókamarkaðurinn í Perlunni er fyrir höfuðborgarbúa.

Við hvetjum alla sem enn hafa ekki lagt leið sína á markaðinn á Akureyri að kíkja við og skoða úrvalið. Einnig viljum við minna á að hægt er að gerast aðdáandi bókamarkaðanna á Facebook og fylgjast þar með fréttum. Smelltu hér til að gerast aðdáandi á Facebook.