Bókamarkaður á Egilsstöðum Print Netfang
Skrifað af Administrator   
Wednesday, 14 April 2010 11:36

bokakallNú er lokið Bókamarkaðinum á Akureyri og búið að pakka saman.  Að þessu sinni tókst afar vel til og góð aukning á sölu frá fyrra ári.

Úrval á bókamarkaðinum var meira en áður og með því allra mesta sem sést hefur norðan heiða gegnum árin.  Þessu kunnu norðlendingar greinilega vel og gerðu góðann róm að markaðinum.  Við sem stöndum að markaðinum þökkum fyrir góðar viðtökur og mætum galvösk fyrir næstu páska.

Í framhaldi af þessu er rétt að nefna að í fyrsta sinn efnir Félag íslenskra bókaútgefenda nú til bókamarkaðar á Austurlandi. Hann verður haldinn á Egilsstöðum 29. apríl til 9. maí n.k.  og verður með svipuðu sniði og á Akureyri. Allar nánari upplýsingar munu birtast hér á fréttavef okkar á allra næstu dögum.