|
Bókamarkaður opnar á Egilsstöðum |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Thursday, 29 April 2010 22:24 |
Nú erum við búin að brjóta blað í sögu bókamarkaða Félags íslenskra bókaútgefenda, með því að opna markað á Egilsstöðum. Við verðum með opið frá 29. apríl til og með 9. maí n.k. Á markaðinum bjóðum við uppá á fjórða þúsund bókatitla í öllum flokkum, og er markaðurinn mjög álíka að umfangi og markaðurinn á Akureyri. Markaðurinn er staðsettur í Kaupfélagshúsinu á Egilsstöðum þar sem Naglabúðin var á árum áður. Opið er kl. 11.00 til 18.00 alla daga.
Við opnuðum fyrir söfn á miðvikudag og fyrsti opnunardagur var á fimmtudag. Það verður að segjast að viðtökur voru frábærar og viðskiptavinir afar ánægðir með að fá loks möguleika á að kaupa bækur á austurlandi.
Vonandi er þessi markaður kominn til að vera um ókomin ár og getur vaxið og dafnað eins og markaðirnir í Reykjavík og Akureyri hafa gert undanfarin ár.
|