Punktar varðandi Bókamarkað Félags ísl. bókaútgefenda 2011. Print Netfang
Skrifað af Administrator   
Wednesday, 05 January 2011 16:25

bokakallBókamarkaðurinn í Perlunni verður með svipuðu sniði og síðustu ár.  Tekið verður á móti bókum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Tilkynna skal til skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda, ef viðkomandi útgefandi vill koma með bækur til sölu á markaðinum.

Þann 22. febrúar 2011 tökum við á móti bókum.  Markaðurinn verður opinn kl. 10.00 til 18.00 alla daga frá 25. febrúar til sunnudags 13. mars.  Útgefendur sjá sjálfir um að setja upp bækur og fylla á, í samstarfi við starfsfólk.

Tilkynningar og fyrirspurnir sendist á tölvupóstfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it