| Bókamarkaðurinn í Perlunni opnar á morgun |
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Thursday, 23 February 2012 08:46 | |||
|
Á mánudagsmorgun mætti flokkur hraustra pilta til vinnu í Perlunni í Öskjuhlíð. Fyrsta verk var að koma upp þeim fjölda borða sem munu á næstu 17 dögum þjóna þeim tilgangi að bera þann gríðarlega þunga sem fólginn er í þeim þúsundum bókatitla sem nú eru á boðstólnum á Bókamarkaðnum í Perlunni. Á þriðjudag og miðvikudag hefur her manns frá ótal bókaforlögum ásamt starfsfólki Bókamarkaðarins unnið hörðum höndum að því að koma öllum þessum bókum úr kössum og á borðin. Hér má sjá stutt myndband sem sýnir hvernig þetta hefst allt saman:
Bókamarkaður í Perlunni 2012 - Undirbúningur
Í dag er fimmtudagur og stærstur hluti bókanna kominn í Perluna og búinn að fá sitt pláss á borðunum sem nú svigna duglega undan þunganum. Á morgun, föstudaginn 24. febrúar kl. 10:00 opnar Bókamarkaðurinn í Perlunni 2012 og verður opinn til og með 11. mars, alla dagana frá kl. 10 - 18. Við viljum nú minna á Facebook síðu Bókamarkaðarins en þar höfum við sett inn myndasöfn, myndbönd og örfréttir af stöðu mála og við hvetjum alla þá sem eru með Facebook aðgang að líka við okkur og fylgjast vel með. Slóðin er www.facebook.com/bokamarkadur Einnig er hægt að fylgjast með okkur á Twitter en slóðin þar er: www.twitter.com/bokamarkadur og svo erum við með YouTube rás en hana má finna á www.youtube.com/bokamarkadur Við hlökkum til að sjá ykkur öll á Bókamarkaðnum í Perlunni 2012.
Bókamarkaður í Perlunni 2012 - Við opnum á morgun
|

