| Nýr metsölulisti og Bókamarkaður í fullum gangi |
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Tuesday, 28 February 2012 18:08 | |||
|
Bóksölulistinn fyrir tímabilið 12. - 25. febrúar er nú aðgengilegur hér á vefnum en Rannsóknarsetur verslunarinnnar annast söfnun upplýsinga fyrir hönd Félags íslenskra bókaútgefenda. Öllum fjölmiðlum er heimilt að birta listann svo framarlega sem heimilda er getið. Listann má nálgast hér: http://bokautgafa.is/index.php/boksoelulistinn Það hefur vonandi ekki farið framhjá neinum að Bókamarkaðurinn í Perlunni er nú í fullum gangi og síðasta helgi var ein sú allra besta sem nokkurn tímann hefur verið og er það vonandi til marks um aukinn lestur meðal þjóðarinnar. Við minnum á Facebook síðu Bókamarkaðarins en þar má koma skilaboðum til okkar, spyrja spurninga, skoða myndir og fá allar nýjustu fréttir af markaðnum. Líkið endilega við okkur á Facebook og kíkið á okkur í Perluna á þennan stærsta bókamarkað landsins.
Facebook síðan: www.facebook.com/bokamarkadur
|

