| Lokahelgin í Perlunni |
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Thursday, 08 March 2012 09:05 | |||
|
Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér bækur á hreint ótrúlegu verði. Í það minnsta hér í Reykjavík því síðasta helgin á Bókamarkaðnum í Perlunni er þessa helgi, 10. - 11. mars. Markaðurinn verður opinn alla helgina frá kl. 10 - 18 en á sunnudagskvöld lokum við markaðnum í Perlunni þetta árið og förum norður á Akureyri. Þar opnum við markaðinn þann 28. mars og mun sá verða auglýstur sérstaklega.
Nú er um að gera að skella sér í Perluna um helgina og gera frábær bókakaup á þessum stærsta Bókamarkaði í Perlunni frá upphafi. Tugþúsundir titla á hreint ótrúlegu verði. Minnum á Facebook síðu Bókamarkaðarins en þar munum við einnig koma á framfæri fréttum á mörkuðunum á Akureyri og Egilsstöðum. Sjáumst hress. Bókamarkaðurinn Perlunni 2012 - Lokahelgin
|

