Vika bókarinnar hefst á morgun Print Netfang
Skrifað af Administrator   
Tuesday, 20 April 2010 22:28

vika bókarinnarÁ morgun, miðvikudaginn 21. apríl, hefst vika bókarinnar og af því tilefni hefur verið stofnuð aðdáendasíða viðburðarins á Facebook. Vika bókarinnar er eins og nafnið gefur til kynna tileinkuð bókum og lestri þeirra. Ávísun á lestur bóka verður borin í hús í upphafi Viku bókarinnar og er það í fimmta sinn sem slíkt er gert. Ávísunin er að andvirði 1.000 krónur sem hægt er að nota sem greiðslumiðil þegar keyptar eru bækur fyrir 3.500 krónur eða meira.

 

Í ár munum við beina sjónum okkar að stöðu skólabókasafna grunnskólanna en þau hafa orðið fyrir niðurskurði að undanförnu. Skólabókasöfnin eru  hornsteinar lestrarhvatningar íslenskra barna og því hefur Félag íslenskra bókaútgefenda stofnað Skólasafnasjóð og munu eitt hundrað krónur af andvirði hverrar ávísunar renna í sjóðinn.

 

Við hvetjum alla til að fylgjast vel með Viku bókarinnar sem hefst, eins og áður segir, á morgun og stendur til og með 27. apríl. Alþjóðlegur dagur bókarinnar er svo föstudaginn 23. apríl. Smelltu hér til að gerast aðdáandi Viku bókarinnar á Facebook.