Veitt úr skólasafnasjóði Print Netfang
Skrifað af Administrator   
Sunday, 02 May 2010 21:10
Í dag voru 10 grunnskólum á landinu veittur styrkur úr nýstofnuðum Skólasafnasjóði. Hver skóli fékk 30 þúsund krónu styrk til bókakaupa fyrir bókasöfnin í skólunum. Dregið var um hvaða skólar fengju þennan styrk á Rás 2 í dag og voru það Barnaskóli Norðfjarðar, Brekkubæjarskóli á Akranesi, Brekkuskóli á Akureyri, Grunnskólinn í Borgarnesi, Grunnskóli Bolungarvíkur, Lundarskóli á Akureyri, Lækjarskóli í Hafnarfirði, Melaskóli í Reykjavík, Myllubakkaskóli í Reykjanesbæ og Öskjuhlíðarskóli í Reykjavík sem hlutu styrk að þessu sinni. Félag íslenskra bókaútgefenda óskar þessum skólum til hamingju með styrkinn.