| Bókamessa í Reykjavík um helgina |
|
|
| Skrifað af Administrator | |||
| Wednesday, 09 November 2011 10:26 | |||
|
BÓKAMESSA Í BÓKMENNTABORG Helgina 12. – 13. nóvember standa Félag íslenskra bókaútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO fyrir bókamessu í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó. Í fyrsta sinn er haldin glæsileg bókamessa hérlendis þar sem íslenskir útgefendur kynna nýja titla sem koma út nú fyrir jólin. Um leið verður fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri í Iðnó báða dagana, bæði í stóra og litla sal. Einnig verður dagskrá í kaffihúsi Ráðhússins, Öndinni, og sögubíll Borgarbókasafnsins, Æringi, verður á svæðinu. Vinsamlegast hlaðið niður þessu skjali fyrir frekari upplýsingar: Bókamessa í Bókmenntaborg
|


