Í skugga Gaulverjabæjar
Sagt frá ósvífnustu fjársvikurum landsins sem settust að í Gaulverjabæ fyrir 100 árum síðan, sviku bændur um allt Suðurland og fláðu þá inn að skyrtu. Margir misstu aleiguna og sumir lífið. Bófarnir skildu eftir sig sviðna jörð og stærsti sparisjóður landsins varð gjaldþrota. Hvernig gat þetta gerst? Bókin fæst aðeins hjá höfundi.Vel myndskreytt.