Höfundur: A.F. Steadman

Skandar og draugaknapinn

Ævintýrið um Skandar og einhyrningana heldur áfram. Skandar hefur uppfyllt drauma sína og er orðinn einhyrningaknapi og þjálfari. En ógnin er aldrei fjarri og þegar hann og félagar hans hefja sitt annað ár á Eyjunni blasir við þeim ný og ófyrirséð ógn. Getur Skandar komið í veg fyrir sjálfseyðingu Eyjunnar, áður en það er of seint fyrir þau öll?

Úr eldri árgöngum

Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.

Titill Höfundur Útgefandi Lýsing
Skandar og einhyrningaþjófurinn A.F. Steadman Benedikt bókaútgáfa Skandar þráir að verða einhyrningsknapi, útvalinn til þess að tengjast eigin einhyrningi lífstíðarböndum, þjálfa hann og keppa með honum; verða hetja. En lífið tekur óvæntari og óhugnanlegri stefnu en nokkurn getur órað fyrir. Máttugasta einhyrningnum er rænt og Skandar kemst að leyndarmáli sem getur haft hræðilegar afleiðingar fyrir alla.