Höfundur: Filippa Widlund
Úr eldri árgöngum
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
| Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
|---|---|---|---|
| Múmínálfarnir og Hafshljómsveitin | Cecilia Davidsson og Alex Haridi | Forlagið - Mál og menning | Hugljúf endursögn úr Minningum múmínpabba eftir Tove Jansson. Múmínfjölskyldan siglir um höfin og lendir í ótal ævintýrum: þau bjarga frænku hemúlsins úr lífsháska, leggja lævísa gildru fyrir risavaxinn dronta og hitta dularfullar slímloppur. En besta ævintýrið bíður þeirra heima. Litríkar myndir varpa töfraljóma á lífið í múmíndal. |
| Ósýnilegur gestur í múmíndal | Cecilia Davidsson | Forlagið - Mál og menning | Hugljúf og falleg endursögn á smásögu Tove Jansson um stúlkuna Ninnu sem varð ósýnileg þegar hún dvaldi hjá kuldalegri frænku. Tikkatú er viss um að hjá múmínfjölskyldunni muni Ninna verða sýnileg aftur en múmínsnáðinn og Mía litla eru ekki sammála um hvaða leið sé best til þess. Litríkar myndir varpa töfraljóma á lífið í múmíndal. |