Höfundur: Sveinn Snorri Sveinsson
Úr eldri árgöngum
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
| Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
|---|---|---|---|
| Ferðalag til Filippseyja | Sveinn Snorri Sveinsson | Bókaútgáfan Deus | Í enda fyrsta hluta þessarar sannsögulegu frásagnar var sögumaður nýlentur á Reykjavíkurflugvelli eftir stutt ferðalag. Við endurnýjum nú kynni okkar við hann daginn sem hann ætlar að halda ferðalaginu áfram og fljúga til Maníla á Filippseyjum með viðkomu í Dubaí þar sem unnustan bíður hans. Lífið er ævintýri og ástin saga sem þarf að segja... |
| Minningablómið fölnar | Sveinn Snorri Sveinsson | LS útgáfa | Þetta er sönn saga af Simma og vinum hans en þeir alast upp í litlum bæ austur á landi. Samhliða ævisögu þeirra kynnumst við Ením Eními og lífinu á plánetunni Krul. Farið er á milli þessara tveggja sögusviða og frásögn Eníms leiðir okkur inn í framandi heima þar sem örlög Simma verða uppspretta að nýju ævintýri sem enn sér ekki fyrir endann á. |
| Töfrar duftsins | Sveinn Snorri Sveinsson | Deus | Fyrir um tíu þúsund árum býr ættbálkur sem kallar sig Nútímafólkið í Vestur-Evrópu. Á meðal þeirra er ungur maður sem heitir Sindros. Sindros kemst í kynni við Baldar töfralækni Bláa fólksins. Hann varðveitir leyndardóm sem reynist örlagavaldur í lífi Sindrosar eftir að Sindros tekst á hendur hlutverk sem enginn veit hvort hann getur uppfyllt. |