Höfundur: Þórður Tómasson
Úr eldri árgöngum
Athugið að bækur úr eldri útgáfum Bókatíðinda eru birtar hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar.
Titill | Höfundur | Útgefandi | Lýsing |
---|---|---|---|
Fræðabálkur að ferðalokum Efni skráð 2020-2021 | Þórður Tómasson | Bókaútgáfan Sæmundur | Í þessari bók rekur Þórður Tómasson (1921–2022) meðal annars gamalt orðafar um raddfæri og málfar, geð- og skapbrigði, svefn og svefnhætti, fjallar um lækningajurtir og matargerð fyrri alda og greinir frá margvíslegum fróðleik um mannlíf og menningu fyrri tíðar undir Eyjafjöllum og víðar um Suðurland. Í bókarauka birtist ítarleg ritaskrá höfundar. |
Rangárþing - Safn til sögu Landnám í Rangárþingi | Gunnar Guðmundsson og Þórður Tómasson | Bókhlaða Gunnars | Fjallað er um það þegar 43 landnemar settust að í Rangárþingi fyrir um 1100 árum. Umfjöllunarefnin eru: hvernig land sýslunnar mótaðist jarðsögulega, gróður á landnámsöld, hellar í sýslunni, skip landnema og hvað var flutt, hvernig fólkið kom sér fyrir, lífsafkomu þess, búfénað, trúariðkanir og mótun stjórnsýslu og valdakerfis. |