Ætli Adólf hafi grátið Evu sína
Ætli Adólf hafi grátið Evu sína geymir hvers kyns vangaveltur um tilveru og viðveru meðborgara okkar, samfélagslega galla og þá gullmola sem leynast í kringum okkur, vel faldir á milli þilja.
Bókin er frumraun höfundar, Friðvins Berndsen, skálds og rafvirkja sem uppalinn er á Skagaströnd en býr nú í Laugardalnum í Reykjavík með nokkrum landnámshænum.