Ariel
Ariel er tímamótaverk í menningarsögunni, þar sem Sylvía skoðar þemu eins og sjálfsmynd, mannlegt ástand og náttúruna. Líf hennar og dauðdagi hefur hlotið goðsagnakenndan blæ mikið til vegna þessarar kraftmiklu ljóðabókar.
Bókin kom fyrst út árið 1965, tveimur árum eftir að Sylvia lést aðeins þrítug að aldri og á því 60 ára útgáfuafmæli í ár. Sylvia er ein allra þekktasta skáldkona 20. aldarinnar.
Bókin er riso-prentuð og handsaumauð á prentverkstæði Skriðu.