Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Birgir Andrésson

Í íslenskum litum

  • Höfundur Þröstur Helgason
Forsíða bókarinnar

Birgir Andrésson (1955–2007) var í senn þjóðlegastur og alþjóðlegastur íslenskra listamanna. Úr uppdráttum af torfbæjum, hestalýsingum, flökkurum og neftóbaksfræðum bjó hann til verk sem segja öllum íbúum heimsins sannleikann um sig sjálfa. Árum saman skráði Þröstur Helgason hnyttni hans og heimspeki, uppvaxtarsögur af Blindraheimilinu og frásagnir af vopnabræðrum í listinni. Það leiðist engum að hlýða á sagnagarpinn í ham og í þokkabót fær lesandinn frábæra innsýn í list hans og feril.