Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Dagbók urriða

  • Höfundur Ólafur Tómas Guðbjartsson
Forsíða bókarinnar

Ólafur Tómas Guðbjartsson hefur staðið við bakkann með veiðistöng í hönd við hvert tækifæri síðustu 30 ár og nú miðlar hann fróðleik í nafni Dagbókar urriða, meðal annars í sjónvarpsþáttum og hlaðvörpum. Bók þessi er óður Ólafs til veiðinnar og náttúrunnar. Í henni má finna fyndnar og merkilegar sögur, frásagnir af baráttum við ótal fiska á fjölbreyttum slóðum og fróðleik um sjóbirtinga, urriða, bleikjur, laxa og ótal veiðisvæði.

Ég er veiðisjúklingur. Ég hef lengi verið veiðisjúklingur. Að einhverju leyti væri hægt að tala um mig sem veiðifíkil. Veiðimennskan átti mig strax frá unga aldri. Ég varð heillaður af því að takast á við náttúruna á einn eða annan hátt. Það er ekki til magnaðri stund en að setja í kraftmikinn fisk og vera algjörlega einn á móti náttúrunni. Að togast á við hana án þess að segja orð. Veiðin hefur alla tíð gefið mér gleði enda er hún alltaf jákvæð.