Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Dagbókin

  • Höfundur Katrín Edda Þorsteinsdóttir
Forsíða bókarinnar

Í Dagbókinni fer Katrín Edda yfir leiðir til að innleiða góðar venjur út frá skilgreiningu innri gilda og skýrri markmiðsetningu sem miða að því að hámarka afköst og árangur.

Í Dagbókinni rúmast yfir 180 dagbókarfærslur, 26 vikuyfirlit og 6 mánaðaryfirlit ásamt borðum sem afmarka þær síður sem verið er að vinna með.

Dagbókin er hönnuð til að auka vitund á daglegum venjum og líðan, meðal annars með markvissri sjálfskoðun, skipulögðum verkefnalistum og dagbókarfærslum.