Draumar
Draumar geta verið á alla vegu. Stórir, litlir, flóknir, einfaldir, tímafrekir, fljótafgreiddir og allt þar á milli.
Mörg fáum við fjölmargar hugmyndir sem við glæðum ekki endilega lífi og tökum lengra. Sum okkar hefur lengi langað að heimsækja ákveðna staði, stofna fyrirtæki, læra að spila á harmonikku, fara í nám, stofna hljómsveit eða útbúa matjurtagarð.
Draumar er verkefnabók sem hjálpar þér að koma draumum þínum í farveg.