Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Ef garðálfar gætu talað

If garden gnomes could talk

  • Höfundar Sigríður Rut Marrow og Þórdís Erla Ágústsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Í hjólhýsabyggðinni á Laugarvatni dafnaði samfélag sem teljast verður einstakt á landsvísu. Ljósmyndararnir Þórdís Erla Ágústsdóttir og Sigríður Rut Marrow heimsóttu hjólhýsabyggðina og mynduðu mannlífið á staðnum, fólk sem naut samvista, hlúði að sjálfu sér og sinnti umhverfi sínu. Samnefnd sýning í Þjóðminjasafninu stendur fram í febrúar 2024.

Í kjarrinu við rætur Laugarvatnsfjalls var byggð sem teljast verður einstök á landsvísu. Hjólhýsi, gerð til að þjóta um vegi og staldra stutt við urðu hjól-laus, staðbundin, hluti af umhverfinu. Þau stóðu þétt saman og hýstu fólk sem hafði þarna sumardvöl og veitti sköpun sinni útrás með öðrum hætti en heimafyrir.

Sem búsetuform var hjólhýsabyggðin visst millistig. Þorp en samt ekki. Sveit en samt ekki. Nema hvort tveggja væri. Náttúran mest fordekruð í blómapottum og svo hin alræmda, stundum misskilda en ávallt ómissandi mannlega náttúra. Nándin við grannana, sem var mun meiri en í hefðbundnum sumarhúsahverfum. Fólk hefur meiri ánægju en ama hvert af öðru.

Bókin kemur út í tilefni af samnefndri sýningu í Myndasal Þjóðminjasafns Íslands. Sýningin stendur frá 16. september 2023 til 14. febrúar 2024 og er afrakstur ljósmyndaskráningarinnar.

Textahöfundar: Guðrún Eva Mínervudóttir og Helga Vollertsen