Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Elskuleg dóttir mín

  • Höfundur Nadia Sammurtok
  • Myndir Pelin Turgut
Forsíða kápu bókarinnar

Með hlýju og ást útskýrir móðir fyrir dóttur sinni allt það sem hún elskar í fari hennar. Hún tengir ástina við náttúrukrafta norðurslóðanna og hefðbundið líf Inúíta; eldurinn í augum stúlkunnar brennur skært og minnir á hlýjan ljósloga, og hugrekki hennar og baráttuþrek minnir á fjólubláa steinbrjóta sem rísa upp úr haustsnjónum.

En hversu mikið elskar móðir dóttur sína? Þessi hugljúfa bók mun tendra bál í hjarta lesandans.