Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Engin heimilisgyðja

  • Höfundur Sophie Kinsella
  • Þýðandi Maríanna Clara Lúthersdóttir
Forsíða bókarinnar

Ofurlögfræðingurinn Samantha Sweeting á sér ekkert líf utan vinnunnar. Hennar æðsti (og eini) draumur er að verða meðeigandi í lögfræðistofunni þar sem hún starfar en þá gerir hún mistök sem gera framtíð hennar hjá fyrirtækinu að engu. Fyrir stórkostlegan misskilning ræður hún sig sem ráðskonu á sveitasetri, án nokkurrar reynslu af heimilisstörfum.

Hún kann ekki að sjóða egg, veit ekki hvað ryksugupoki er og hefur aldrei sett upp gúmmíhanska. Mun fjallmyndarlegi garðyrkjumaður setursins bjarga málum eða flækja þau enn frekar? Bráðfyndin skáldsaga um hvernig hraði og álag í nútímasamfélagi getur uppfyllt drauma en líka gleypt líf okkar – og hvernig nýbakað brauð getur verið birtingarmynd fullkomnunnar. Áður hafa komið út hjá Angústúru bækurnar Mitt (ó)fullkomna líf og Leyndarmál eftir sama höfund.

„Ég mæli því með að þeir sem hafi ekki lesið bókina leiðrétti það sem fyrst og að aðrir taki hana aftur upp til að grenja úr hlátri!“ Sæunn Gísladóttir, Lestrarklefanum