Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Fíkn

  • Höfundur Rannveig Borg Sigurðardóttir
Forsíða bókarinnar

Líf Ellerts umturnast þegar hann heillast af myndlistarkonunni Freyju Negroni, sem hefur nýlega snúið heim frá Ítalíu eftir erfiðan skilnað.

Hann reynir að fylgja Freyju eftir í tryllingslegri rússíbanareið þar sem fíkn er yfir og allt um kring. Villt kynlíf og vímugjafar virðast aldrei langt undan. Lygarnar og svikin vinda upp á sig.

Rannveig Borg slær hér nýjan og djarfan tón með sinni fyrstu bók.