Frasabókin

Íslensk snjallyrði við hvert tækifæri

Forsíða bókarinnar

Yfir þúsund frasar, snjallyrði, orðtök og slanguryrði. „Skemmtilegur leiðarvísir sem birtir og skýrir frasa úr öllum áttum og frá öllum tímum. Framtíðin meðtalin.“ / Árni Matthíasson, menningarblaðamaður. „Bók sem hver einasti Íslendingur verður að eiga. Þetta er sko eitthvað ofan á brauð!“ / Ari Eldjárn, grínisti.

Vilt þú …

Vera fyndnari?

Eignast fleiri vini og geta talað við hvern sem er?

Ná betra taki á tungumálinu?

Vera betri í að skrifa SMS, tölvupósta, bréf og fax?

Geta skilið jafnt unga sem aldna?

Koma með betri mótsvör í rifrildum?

Skara fram úr á kaffistofunni í vinnunni?

Vera betri í að brjóta ísinn í veislum og á mannamótum?

... Þá er Frasabókin fyrir þig!

Frasar sem geta glatt vinina, afa og ömmu, frændur og frænkur, mágkonur og samstarfsfélaga.

Skemmtileg, fyndin og fræðandi bók sem kemur að góðum notum hvar og hvenær sem er.