Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Galdur og guðlast

Dómar og bréf I-II

  • Ritstjóri Már Jónsson
Forsíða bókarinnar

Galdramál 17. aldar eru óhugnanlegur vitnisburður um refsihörku yfirvalda sem á sextíu árum létu brenna eina konu og tuttugu og einn karl á báli. Í þessu tveggja binda verki eru teknir saman allir tiltækir dómar og bréf sem vörðuðu ákæru eða orðróm um galdra á árabilinu 1576-1772. Már Jónsson prófessor bjó til útgáfu og ritar inngang og skýringar.

Galdramál 17. aldar eru óhugnanlegur vitnisburður um refsihörku yfirvalda sem á sextíu ára bili létu brenna eina konu og tuttugu og einn karl á báli, fyrir utan aðrar aftökur sem voru miklu fleiri. Sum þessara mála sýna líka yfirvegaða fólsku einstaklinga sem vegna hræðslu eða haturs kærðu nágranna sína og kunningja fyrir galdra, vitandi vits að dauðadómur blasti við eða harkaleg hýðing sem gekk nærri lífinu. Veikindi á fólki og jafnvel dauði voru helstu sakarefni en líka skepnumissir eða aflabrestur og önnur skemmdarverk.

Á annað hundrað dómsmál eru þekkt þar sem galdrar voru í aðalhlutverki. Í þessu tveggja binda verki eru teknir saman og gefnir út allir tiltækir dómar sem komu fyrir rétt og vörðuðu ákæru eða orðróm um galdra á árabilinu 1576-1772. Einnig eru birt embættisbréf og sendibréf sem tengjast málunum. Már Jónsson prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands bjó skjölin til útgáfu og ritar inngang.