Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Húðin - og umhirða hennar

  • Höfundur Kristín Sam
Forsíða bókarinnar

Langar þig að:

Læra að greina þína húðgerð? Læra að velja húðvörur sem henta þinni húð? Læra að setja saman persónulega húðrútínu? Fræðast um innihaldsefni húðvara? Húðin og umhirða hennar inniheldur margvíslegan fróðleik um húðina og hvernig best er að annast hana. Kristín Sam hefur áralanga þekkingu og reynslu af húð- og snyrtivörum.

Í bókinni má finna margvíslegan fróðleik um húðina og hvernig best er að annast hana. Hér má fræðast um starfsemi húðarinnar, algeng húðvandamál, ólíkar húðvörur og virkni þeirra. Lesendur læra að greina sína húðgerð og fá ráðleggingar um hvaða húðvörur henta best, einnig með tilliti til ákveðinna húðvandamála.

Langar þig að:

• Læra að greina húðgerð þína?

• Læra að velja húðvörur sem henta þinni húð?

• Læra að setja saman persónulega húðrútínu?

• Fræðast um innihaldsefni húðvara?

KRISTÍN SAM hefur áralanga þekkingu og reynslu af húð- og snyrtivörum. Hún heldur úti vefsíðunni kristinsam.com og instagramreikningnum: @ksam.beauty