Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hýperíon

eða einfarinn á Grikklandi

Forsíða bókarinnar

Hýperíon er þroskasaga ungs manns sem gerist á Grikklandi á 18. öld og er lýsing á viðleitni skáldsins til að ná fótfestu í heimi þar sem verðmæti á borð við ást og fegurð eru lítils met­in. Sagan er rómantískur óður til náttúrunnar, áskorun um að vernda hennar miklu gersemar. Frásögnin er ljóðræn og tilfinningaþrungin, skrifuð með hjartablóði eins af fremstu ljóðskáldum Þjóðverja fyrr og síðar. Tímalaust og grípandi verk.