Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Jógastund

  • Höfundur Anna Rós Lárusdóttir
  • Myndhöfundur Auður Ómarsdóttir
Forsíða bókarinnar

Jógastund er fyrir alla sem vilja stunda jóga, ekki síst foreldra sem vilja virkja börnin í uppbyggjandi leik. Bókin inniheldur yndislegar jógastöður ásamt sögum, æfingum og leikjum. Æfingarnar og leikirnir eru aðgengileg fyrir alla, þar sem við líkjum í sameiningu eftir dýrum og hlutum í náttúrunni og úr verður hin besta samveru- og gleðistund.

Ys og þys í nútímasamfélagi nær ekki eingöngu til okkar fullorðna fólksins heldur engu síður til barnanna okkar. Að aðstoða börnin við að finna ró og létta á álaginu með jóga er ávísun á núvitund – og dásamlega jógastund!

JÓGASTUND inniheldur yndislegar jógastöður ásamt sögum, æfingum og leikjum sem hjálpa fjölskyldu og vinum að auka vellíðan og rækta líkama og sál.

Anna Rós Kristjánsdóttir jóga- og grunnskólakennari færir okkur hér listina að brjóta upp erilsaman dag með gæða jógastundum og listakonan Auður Ómarsdóttir glæðir þær lífi með heillandi heimi, brosandi birtu og litum svo að erfitt er að hrífast ekki með.