Leiðir hugann seiður
Bragi Björnsson frá Surtsstöðum (1929-2011) var gott og afkastamikið ljóðskáld og í bókinni birtist aðeins hluti af áður óprentuðum kveðskap hans. Yrkisefnin eru fjölbreytt, mannlífið í víðum skilningi og hin lifandi náttúra skipa þar heiðurssæti ásamt ljóðum um sögulegt efni. Áður hafa komið út eftir Braga bækurnar Agnir og Laðar nótt til ljóða.