Leir-andi Leir-andi
Bókin varpar skýru ljósi á þátt Ólafar Erlu í sögu keramiks á Íslandi í áratugi og fjölbreytni verkanna gefur innsýn í feril hennar sem listakonu sem sífellt fer ótroðnar slóðir og reynir á mörk og múra í listsköpun sinni.
Í bókinni eru verk höfundar skrásett á myndrænan hátt, ásamt prentuðu máli sem lýsir 40 ára starfsferli. Unnið var að gerð bókarinnar samhliða undirbúningi fyrir yfirlitssýningu á verkum höfundar sem fram fór á Korpúlfsstöðum í maí, 2024.
Hönnun bókarinnar endurspeglar lifandi feril Ólafar Erlu. Bókin er handhæg og aðgengileg, textinn er bæði á íslensku og ensku og gefur lesendum innsýn í störf hennar og verk. Bókin varpar skýru ljósi á þátt hennar í sögu keramiks á Íslandi á löngu tímabili og fjölbreytni verkanna gefur innsýn í tíðarandann.
Ritstjórarnir Brynhildur Pálsdóttir hönnuður og Sigurlína Margrét Osuala keramiker rita inngang en Guja Dögg Hauksdóttir arkitekt skrifar texta sem er í formi viðtals við listakonuna. Hönnuður bókarinnar er Ármann Agnarsson.