Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Líkþvottakonan

  • Höfundur Sara Omar
  • Þýðandi Katrín Fjeldsted
Forsíða bókarinnar

Magnþrungin saga um sektarkenndina, heiðurinn og skömmina sem þjakar milljónir stúlkna og kvenna um allan heim, dag eftir dag, ár eftir ár.

Líkþvottakonan segir sögu Frmeskar, sem er fædd í Kúrdistan árið 1986. Faðir hennar er ósáttur við að hún er stelpa og hótar að koma henni fyrir kattarnef.

Mannréttindafrömuðurinn Sara Omar hefur hlotið fjölda bókmenntaviðurkenninga, m.a. De Gyldne Laurbær í Danmörku og Bjørnson í Noregi.