Litla geimskipaleigan

Forsíða bókarinnar

Litla geimskipaleigan er staðsett á plánetunni Íbú en þar býr geimskipið Vega sem bíður óþreyjufullt eftir leigjendum. Einn góðan veðurdag koma tveir íbúar á leiguna sem vilja bara leigja bestu og flottustu geimskipin en eftir nokkrar misheppnaðar prufukeyrslur kemur í ljós að skipin sem þau vilja henta þeim kannski ekki.