Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Lognmolla í ólgusjó

Alþingiskosningarnar 2021 og kjósendur í áranna rás

  • Höfundar Hulda Þórisdóttir, Agnar Freyr Helgason, Eva H. Önnudóttir, Jón Gunnar Ólafsson og Ólafur Þ. Harðarson
Forsíða kápu bókarinnar

Bókin leiðir lesendur í ferðalag um íslensk stjórnmál. Hér leita höfundar svara við spurningum sem gjarnan eru ræddar í heitum pottum landsins:

Hvað gæti ráðið mestu um hvað fólk kýs? Er eitthvað að marka fylgiskannanir? Hafnar unga fólkið hefðbundnum stjórnmálum? Er gjá milli frambjóðenda og kjósenda? Er neikvæðni í kosningabaráttu að aukast? Og hvernig hefur þetta allt verið að breytast á undanförnum árum og áratugum?

Árið 2021 lék heimsfaraldur heiminn grátt en í íslenskum stjórnmálum ríkti loks lognmolla eftir óróleika eftirhrunsáranna. Með einstökum gögnum Íslensku kosningarannsóknarinnar eru alþingiskosningarnar 2021 notaðar sem útgangspunktur til að skoða stjórnmálaþróun síðustu áratuga og hvers megi vænta í þróun lýðræðis á næstu árum.

Höfundar bókarinnar eru sérfræðingar í íslenskum stjórnmálum og eru mörgum lesendum kunnir fyrir skýringar sínar á stjórnmálum í fjölmiðlum um árabil.

,,Útkoma þessarar bókar er mikið fagnaðarefni fyrir öll okkar sem höfum áhuga á stjórnmálum. Hér birtast ítarlegar rannsóknir helstu fræðimanna okkar sem greina og skýra hvað gerðist í alþingiskosningunum 2021, skrifaðar á tungumáli sem allir geta skilið. En bókin er miklu meira en það, hér er skýr innsýn í viðhorf og væntingar kjósenda til lýðræðisins og stjórnmálaþátttöku undanfarna áratugi – og margt fleira. Bókin á ekki bara erindi til fræðimanna heldur og alls almennings. Hún er í raun ómissandi fyrir allt áhugafólk um stjórnmál."

- Bogi Ágústsson fréttamaður