Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Marísól og sjóflugvélin

  • Höfundur Hafliði Sævarsson
  • Myndir Hafliði Sævarsson og Ýmir H. Garcia
Forsíða bókarinnar

Marísól lendir í ævintýralegum aðstæðum og oft munar mjóu á því hvort hyldýpið hafi yfirhöndina eða hún sigri náttúruöflin.

Þegar mamma hennar Marísólar lýkur störfum á hitabeltiseyju í Karíbahafinu þarf fjölskyldan að fljúga heim í sjóflugvél. Marísól er leið yfir því að þurfa yfirgefa eyna og besta vin sinn þar, Orlandó hliðvörð. Hann gefur henni ógleymanlega kveðjugjöf.

Allt virðist ganga að óskum þar til óvænt vandamál kemur upp. Marísól og foreldrar hennar verða að nauðlenda á hafi úti og leita annarra leiða til að komast heim. Fleiri óvænt skakkaföll fylgja í kjölfarið og það reynir mjög á útsjónarsemi Marísólar og hæfileika hennar til að vingast við menn, dýr og vættir. Hún lendir í ævintýralegum aðstæðum og oft munar mjóu á því hvort hyldýpið hafi yfirhöndina eða Marísól sigri náttúruöflin.