Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Martröð í Hafnarfirði

  • Höfundur Rakel Þórhallsdóttir
  • Myndhöfundur Heiða Rún Jónsdóttir
Forsíða bókarinnar

Jón Pétur, sem er að byrja í sjöunda bekk, hlakkar síður en svo til þess að hefja nýtt skólaár. Hann hefur alla tíð verið vinafár og fótboltastrákarnir áreita hann nánast daglega. Ekki skánar ástandið þegar bekkurinn fær nýjan kennara sem kemur krökkunum afar undarlega fyrir sjónir. Stuttu seinna fara skrítnir hlutir að gerast í Hafnarfirði þegar einn fótboltastrákanna hverfur sporlaust. Í kjölfarið hefst óútreiknanleg atburðarrás sem aðeins Jón Pétur og nýju vinir hans virðast geta stöðvað.