Mörk
Ljóðabók eftir Stefán Þór Sæmundsson, kennara við Menntaskólann á Akureyri. Mörk telst líklega einstök ljóðabók að efni og formi. Hér er bæði óbundið og flæðandi form og þrælbundið á ýmsa vegu. Yrkisefnið snýst að stórum hluta um íslenska tungu, sögu, menningu og tilveru.
Bókin skiptist í fjóra ólíka kafla sem þó mynda þræði. Einn hlutinn fjallar um fíkn, tónlist og þrá í töfralausnir og í lokin fáum við innsýn í þankagang unglingsstúlku í tilvistarkreppu. Þetta er óvenju efnismikil ljóðabók og greinilegt að höfundi liggur margt á hjarta. Þema bókarinnar felst í mörkum af ýmsu tagi, tala má um hvörf, landamæri, girðingar og kaflaskil.