Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Pétur og Brandur Ófriður í grænmetisgarðinum

Forsíða bókarinnar

Það er fagur vormorgunn í friðsælum trjágarði í Svíþjóð og Pétur ætlar að sá fyrir grænmeti og setja

niður kartöflur. Kötturinn Brandur er ekki hrifinn af áformunum og vill heldur rækta eitthvað annað.

Garðyrkjan gengur þó ekki alveg þrautalaust og það reynir á hugvitsemi Péturs og leikhæfileika Brands.