Austfirsk ljóðskáld XXII Öræfanna andar svífa
Úrval ljóða
Ljóðin sem birtast í þessari bók eru eftir fjögur systkini sem ólust upp í Heiðarseli í Jökuldalsheiði á fyrri hluta tuttugustu aldar. Þau urðu þekkt fyrir ljóðagerð sína ung að árum. Félag ljóðaunnenda á Austurlandi vill með útgáfunni heiðra minningu þessara sönnu alþýðuskálda með vissu um að kveðskapurinn á enn erindi við ljóðelska lesendur.