Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Rannsóknir í viðskiptafræði II

Forsíða bókarinnar

Í 13 köflum segja 23 höfundar frá rannsóknum í heilbrigðisgeira, málefnum innflytjenda, kvikmyndageira, neytendamálum, orkugeira og sjávarútvegi. Einnig er fjallað um ýmis viðfangsefni á sviði þjónustu tengt fjármálafyrirtækjum, vátryggingarfyrirtækjum og stafrænum viðskiptum.

Rannsóknir í viðskiptafræði er ritröð þar sem birtir eru ritrýndir kaflar um rannsóknir á bæði fræðilegum og hagnýtum þáttum viðskiptafræða. Hér er á ferðinni önnur bókin í ritröðinni. Fyrsta bókin, Rannsóknir í viðskiptafræði I, kom út á árinu 2020 með 14 köflum eftir 25 höfunda þar sem m.a. var greint frá rannsóknum á sviði sjávarútvegs, iðnaðar, orku, smásölu, fjármála og þjónustu, auk umfjöllunar um utanríkisþjónustu og starfsemi sveitarfélaga.

Efni þessarar bókar er einnig mjög fjölbreytt. Í 13 köflum segja 23 höfundar frá rannsóknum í heilbrigðisgeira, málefnum innflytjenda, kvikmyndageira, neytendamálum, orkugeira og sjávarútvegi. Einnig er fjallað um ýmis viðfangsefni á sviði þjónustu tengt fjármálafyrirtækjum, vátryggingarfyrirtækjum og stafrænum viðskiptum. Jafnframt er rannsóknum lýst sem tengjast hagfræði og lýðfræði, kynbundnum hindr- unum í stjórnun og á nýsköpunarumhverfi á Íslandi.

Bókin Rannsóknir í viðskiptafræði II er tileinkuð minningu dr. Ingjalds Hannibalssonar, fyrrum prófessors og velunnara Háskóla Íslands. Á útgáfuárinu eru liðin 70 ár frá fæðingu hans, en hann féll frá árið 2014.