Rót alls ills
Réttarsálfræðingurinn Kamilla Brim neyðist til að segja skilið við ástina í lífi sínu, snúa heim á ný og annast dauðvona móður sína. Hún er rétt að koma sér fyrir í nýrri stöðu hjá Fangelsismálastofnun ríkisins þegar Gísli Ágústsson, hrífandi og myndarlegur lögmaður, óskar eftir sálfræðilegu mati á ungum manni sem játað hefur á sig morð.