Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Lóa og Börkur Saman í liði

  • Höfundur Kjartan Atli Kjartansson
Forsíða bókarinnar

Þegar miðherji unglingaliðs í körfubolta hrynur niður í miðjum leik vegna óvæntra veikinda eru góð ráð dýr. Liðsfélagarnir óttast um afdrif vinar síns og draumarnir um Íslandsmeistaratitilinn eru í uppnámi, en á ögurstundu kemur öflugur liðsstyrkur úr óvæntri átt.

Lóa og Börkur – Saman í liði er skemmtileg og spennandi saga um mikilvægi vináttunnar.