Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Skerið

  • Höfundar Áslaug Torfadóttir og Ragnar Egilsson
  • Lesari Haraldur Ari Stefánsson
Forsíða bókarinnar

Ási vaknar einn og yfirgefinn á hótelherbergi á Tene eftir fyllerí. Hann er rólegur í fyrstu en gamanið er fljótt að kárna. Pési vinur hans er horfinn og Ási er fastur á eyjunni, sem á sér dularfulla fortíð. Fljótt kemst hann að því að hann er í mikilli hættu. Skerið er hljóðsería í sex hlutum þar sem hljóðbókarformið er tekið á næsta stig.

Þegar Ási vaknar einn og yfirgefinn á hótelherbergi eftir fyllerí er hann rólegur í fyrstu. Staðráðinn í að njóta lífsins á Tene með Pésa vini sínum heldur hann út í daginn, en gamanið fer fljótlega að kárna. Pési er horfinn, Ási er alls ekki svo viss um að hann sé ennþá á Tene, og eyjan sem hann virðist ekki komast af á sér dularfulla fortíð. Leit Ása að svörum leiðir yfirleitt til fleiri spurninga, en eitt er ljóst: Ási er í mikilli hættu.

Skerið er hljóðsería í sex hlutum þar sem farið er með hljóðbókarformið á næsta stig og engu er til sparað. Við stígum inn í hljóðheim Ása og fylgjum honum eftir í sannleiksleit sinni. Haraldur Ari Stefánsson er Ási, en með önnur hlutverk fara Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir sem Hildur, Guðmundur Ingi Þorvaldsson sem Leifur, Stefán Hallur Stefánsson sem Eyvindur og Svandís Dóra Einarsdóttir sem Rebekka.